Um okkur

Útfararþjónusta Akureyrar hóf starfsemi sína í mai 1997. Á sama tíma var nýtt líkhús og kapella tekin í notkun hjá Kirkjugörðum Akureyrar. Arkitekt af húsinu er Svanur Eiríksson. Útfararþjónustan hefur aðstöðu í Höfðakapellu sem stendur við Kirkjugarðinn við Höfðagötu Þar er öll aðstaða til kistulagninga og fámennra athafna. Einnig er aðstaða til að taka á móti aðstandendum.

Starfsmenn

Stefán Gunnarsson

Framkvæmdastjóri

Árný Þóra Ármannsdóttir

Umsjón útfara

Vigdís Lovísa Rafnsdóttir

Umsjón útfara

Sigmar Benediktsson

Útfararstjóri

Birgir Snorrason

Afleysingar / Útfararstjóri

Verksvið

Útfararþjónustan sér meðal annars um að sækja látna á dánarstað, aðstoða við val á líkkistu, búa um látna í kistu, aðstoða við undirbúning útfarar, sálmaskrá, blóm, tónlist og tilkynningar svo fátt eitt sé nefnt. Starfsfólk Útfararþjónustu kappkostar að aðstoða aðstandendur með hvaðeina sem viðkemur útför.

Jafnframt á og rekur Útfararþjónustan tvo sérútbúna líkbíla.