Bálfarir
Útfararþjónusta Kirkjugarða Akureyrar hóf starfsemi sína í mai 1997. Á sama tíma var nýtt líkhús og kapella tekin í notkun hjá Kirkjugörðum Akureyrar. Arkitekt af húsinu er Svanur Eiríksson. Útfararþjónustan hefur aðstöðu í Höfðakapellu sem stendur við Kirkjugarðinn við Höfðagötu Þar er öll aðstaða til kistulagninga og fámennra athafna. Einnig er aðstaða til að taka á móti aðstandendum.
- Bálfararbeiðni
Undirbúningur vegna útfarar
Þegar andlát ber að höndum
Ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi undirbúning útfarar
Þegar andlát ber að, tekur við margþætt og um leið flókið ferli við að undirbúa útför. Aðstoð Útfararþjónustu Kirkjugarða Akureyrar stendur öllum til boða.
Mikilvægt er að aðstandendur velji sér prest eða athafnastjóra til að stýra útförinni og getur Útfararþjónustan haft milligöngu um það ef óskað er. Þeim aðila veitir Útfararþjónustan síðan alla nauðsynlega aðstoð og skipuleggur ferlið í nánu samráði við aðstandendur.
Dánarvottorð
Læknir gefur út dánarvottorð. Aðstandendur fá send skilaboð á vefnum www.island.is þar sem svara þarf ýmsum spurningum sem tengjast hinum látna. Að því loknu er gefin út staðfesta eða útfararleyfi sem aðstandendur afhenda presti eða athafnarstjóra.
Andlátstilkynnig
Eðlilegt er að tilkynna andlátið til nánustu ættingja og vina. Margir auglýsa það og/eða útförina einnig í fjölmiðlum.
Kista og umbúnaður
Kistulagningarathafnir á vegum Útfararþjónustunnar fara fram alla virka daga frá kl. 10-15 í Höfðakapellu en einnig er hægt að óska eftir öðru athafnarými. Kistulagning getur einnig farið fram á undan útför í viðkomandi kirkju.
Starfsfólk Útfararþjónustunnar aðstoðar aðstandendur við val á kistum og útvegar þær. Umbúnaður hins látna fyrir útför er gerður í fullu samráði við aðstandendur.
Útförin
Útförin getur farið fram frá hvaða kirkju sem er eða öðru athafnarými. Útfararathöfn getur farið fram hvort heldur sem er yfir kistu eða keri.
Í sumum tilvikum er haldin minningarathöfn á öðrum stað en þar sem útför eða greftrun fer fram, t.d. þegar hinn látni er jarðsunginn fjarri heimaslóðum eða lík hans ekki komið fram.
Sumir óska eftir því að útför fari fram í kyrrþey. Þá ósk ber að virða.
Sálmaskrá og skreytingar
Útfararþjónustan sér um uppsetningu og prentun á sálmaskrá sé þess óskað.
Útfararþjónustan miðlar upplýsingum frá blómaverslunum ef aðstandendur óska eftir. Sumir kjósa að sveipa kistuna íslenska fánanum.